A moment, please
A moment, please
Sari Seramor er portúgölsk söngkona, lagahöfundur og hljóðfæraleikari með kraftmikla rödd og einstaka nærveru. Tónlist hennar sækir áhrif í reggae, þjóðlagatónlist, latneska takta og möntrur, en Sari hefur einstakt lag á að skapa einlæga tengingu við áhorfendur og gera þá að hluta af upplifuninni. Fimmtudaginn 24. september heldur Sari tónleika á White Lotus þar sem hún býður gestum inn í lifandi tónlistarferðalag. Reggae, þjóðlagatónlist, latneskir taktar og möntrur fléttast saman við sögur, spuna og sameiginlegan söng. Kvöldið færist frá kyrrum og innilegum augnablikum yfir í kraft, gleði, dans og fögnuð. Kvöldið hefst með tónlist frá Eygló Scheving söngkonu og tónlistarkonu. Hún mun flétta saman möntrum, íslenskri þjóðlagatónlist og eigin tónsmíðum áður en Sari stígur á svið. Tónleikarnir hefjast kl 20:00 Húsið opnar 19:30 Miðasala á workshop og cacao athöfn 26.sept fer fram á www.karmad.is