*See English below *Listen to Ólöf on Spotify: https://open.spotify.com/artist/4S3XJRZ2bToEYIH1slOdl5?si=c-EhCb3SQGKf0qoJgGUt2w Rómantíkin mun svífa yfir vötnum í Kornhlöðunni sunnudaginn 23. febrúar næstkomandi kl. 20 en söngvaskáldið víðfræga, Ólöf Arnalds, mun þá fagna Konudeginum og byrjun Góu með því að töfra fram seið af hjartnæmum ástarlögum úr eigin ranni, sem og eftir aðra höfunda sem gerir kvöldstundina tilvalda til að gera sér dagamun með ástinni sinni. Ólöf Arnalds hóf feril sinn sem söngvaskáld með hljómplötunni Við og við, sem hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir. Á erlendri grundu var hún valin í hópi bestu platna ársins af Paste Magazine, auk þess sem eMusic valdi hana eina af bestu plötum fyrsta áratugarins. Fyrir aðra sólóplötu sína, Innundir skinni, hlaut Ólöf Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónsmiður ársins, auk þess sem platan var tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna. Þá hefur Ólöf gefið út plöturnar Sudden Elevation og Palme en báðar hlutu þær mikið lof gagnrýnenda víða um heim. Fimmta breiðskífa Ólafar er væntanleg í byrjun desember. Á farsælum ferli sínum hefur Ólöf einnig lagt stund á að túlka lög eftir aðra, m.a. á smáskífunni Ólöf Sings. Ólöf hefur leikið á tónleikum víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Fjöldi dagblaða, tímarita, vefmiðla, útvarps- og sjónvarpsstöðva víðsvegar um heim hafa fjallað um hana og verk hennar. Má þar nefna The New York Times, The Guardian, Vanity Fair, Paste, BBC, KEXP og Uncut. In Kornhlaðan on February 23rd at 20:00 the internationally known singer songwriter Ólöf Arnalds will be celebrating the ancient Konudagur á Góu or Woman's day in Góa by offering an evening of feminine magic and romance by performing love songs (both her own and by other composers). Ólöf Arnalds is an Icelandic composer and multi-instrumentalist. Her most distinctive asset is, nonetheless, her voice of instantly captivating, spring water chasteness possessed of a magical, otherworldly quality that is simultaneously innocent yet ancient (“somewhere between a child and an old woman” according to no less an authority than Björk). Her work has been called "stunning" by SPIN, "bewitching" by Rolling Stone, "remarkable" by the NME, "ethereal" by Vanity Fair "otherworldly" by The New York Times, and "impossibly lovely" by Paste.